21.4.2007 | 09:35
jæja það er bara gaman hér i reykjavík:)
já núna er ég buin að vera í mánuð og einhverja daga, það er bara búið að vera mjög gaman þó svo að ég hafi ekki alltaf neitt að gera, en vá um daginn fór ég með systur minni í smáralindina það var gaman við keyptum okkur dót í tiger og svo eikkað smádót, þegar að við vorum á leiðinni heim þá lentum við heldur betur í ólukku! ok við fórum fyrst i strætó nr 24 upp í ásgarð í garðabæ, svop ætluðum við að taka nr 22 inn í hafnarfjörð, en það fór ekki eins og planað var ok strætókallinn sem er pólverji hleypti okkur inn í strætóin fór út og lokaði og fór svo upp í annan strætó!! meina er hann heimskur eða er hann heimskur, jæja þegar að hann fór þá panikuðum ég og systir min, urðum skíthræddar og vissum ekkert hvað við áttum að gera,, systir mín hríngir í vinkonu sína og segir að við séum læst inni strætó, meina við héldum að hann ætlaði að ræna okkur eða eikkað, ekki oft semað maður fer i strætó og manni er bara læst inni, ég var orðin vel smeyk og var nottla með hann magnús litla líka með, en kallinn kom ekki fyrr en eftir 20 mínútur!!!!! en síðan loksins þegar að kallinn kom aftur þá eilla hálf kallaði systir min á kallin að opna dyrnar fyrir okkur,, þá sagði hann: ekki fara með mig? þá sagði systir min við hann ekki sjens í Helv***** síðan kom nú vinkona systur minnar og hun var svo góð að skutla okkur heim, en við förum ALDREI í strætó nr 22 aftur!!!!!!! ekki séns í helv***** en já svona fór þessi rosa fína strætóferð sem við lentum í. en annars er búið að vera rosalega gaman hérna, er búin að vera útum allan bæ liggur við með hann magnús, en jæja núna held ég að þetta fái að duga í bili, er ekki vön að skrifa svona rosalega mikið en well það var kominn tími til
By the way við hringdum á lögguna
Bloggar | Breytt 22.4.2007 kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.3.2007 | 13:20
stórborgin rvk
já núna erum við Magnús í stórborginni hjá pabba mínum, voða næs að komast í smá svona frí, annað en að vera bara heima alltaf, magnús er voða vær, og er kominn á lagið með að fara sofa kl 9 á kvöldin og vakna ekki fyrr en um 6 leytið það er mjög næs þá er ég í fríi srá kl 9 til ca 10-11 þá fer ég að sofa ég fór með magnús til ömmu hrefnu í heimsókn og tók myndir af þeim saman, amma var voða ánægð að fá að halda á honum, hér fyrir neðan er mynd af þeim saman þau eru svo sæt saman ég elska þau bæði mjög mikið. svo í gær 21 mars þá fór ég til ömmu boggu upp í breiðholt, við spiluðum saman og höfðum það gaman. Hún er voða hress alltaf, svo kom Emil stjúp afi minn lika i heimsokn að sjá litla kútinn minn, en hann emil er nú orðinn hálf blindur og sér voða lítið, en hann sá samt magnús smá. Núna laugardaginn 24 mars á hún ragga vínkona afmæli, okkur magnúsi er boðið til hennar i smá veislu, og er ég að fara á eftir eða á morgun að kaupa gjöf handa henni Já það er sko margt sem er í boði hér i rvk, alltaf nóg að gera og svoleiðis. en jæja þá er þetta komið í bili...
ég skrifa meira inn seinna.... að lokum vil ég syna sæta mynd af Magnúsi syni mínum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.3.2007 | 17:18
smá um mig.
Nafn: Freydís Hrefna
Aldur: 21
Hárlitur: dökkt og ljóst
Augnlitur: gráblár
Hæð: 162
Stjörnumerki: sporðdreki
Ahugamál: allt sem tengist saumaskap og dyr og börn
Starf: ekkert
A lausu?: já
Uppáhalds litur: blár
Uppáhalds matur: lasagna
Uppáhalds drykkur: pepsi max lime
Systkini: 8stk
Gælunöfn: dísa
Göt i eyru /nafla?: bæði en nota hvorugt
Tattoo: já sporðdreka á öxlinni
Skemmtilegt að gera: hugsa um strákinn minn
Sumar eða vetur? Sumar
Reykiru: nei
Drekkurðu: nei
Elskar þú einhvern?: já son minn utaf lífinu
Hatar þú einhvern?: nei það held eg ekki
Hvernig typa ertu?: róleg bara, reyni að vera góð við alla.
já þetta var svona smá um mig...nú vitiði smá um mig allavega
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2007 | 13:46
halloj :)
jæja nú er mánuðurinn á síðasta degi, utborgun á morgun Mars í nánd og páskar i April, ég fer suður með Magnúsum páskana til að hitta föður minn og ættingja sem vilja sjá prinsinn minn hann fór í 6vikna skoðun í gær og er hann búinn að þyngjast um 395gr á 15 dögum og er núna 4395gr, hann er 56cm og er þvíbúinn að stækka um 5cm síðan að hann fæddist 18 jan 07' hann dafnar vel og er farinn að skælbrosa til manns. Algjör rúsina jams er hann ekki sætursvona skælbrosandi? en jæja eg er hætt í bili bæbæbbs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2007 | 14:53
já halló
já ákvað að gerast bloggari hérna á blog.is ég var með siðu á blogcentral en hætti með hana því að ég hreinlega nennti ekki lengur að vera með hana. vona að ég haldi þessari lengur :) ætla að reyna blogga eins oft og ég get hérna...en get bara bloggað ef ég fer heim til mömmu eða einhvert þar semað ég á ekki tölvu og ekki netið en ég hef bara tíma tilað blogga á meðan að sonur minn er sofandi eða rólegur á teppi jæja læt þetta duga í bili hjá mér.
Kveðja Freydís
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)