17.8.2008 | 19:46
Í minningu um Hrefnu ömmu
Þann 15 ágúst kl 10:35 lést hún elskuleg amma mín.
Hún var orðin 87 ára gömul en yndisleg amma og ég mun sakna
hennar sárt.
Ég mun hugsa hlytt til hennar og minnast hana eins og hún var góð
og yndisleg amma og
hvernig hún var þegar að hún var á sínum bestu tímum,
Ég mun aldrei gleyma jólin árið 1989 þegar að ég var aðeins 4 ára
gömul, þá bjuggum við í svíðþjóð
en komum heim til ömmu um jólin, það var einhver svaka fínn
jólamatur en ég spurði hana
ömmu mína við matarborðið "amma má ég fá hafragraut?"
og eins og amma var alltaf góð þá sagði hún já og eldaði handa mér
hafragraut í jólamat
svo þegar að við fluttum til íslands 98" þá voru margar helgar sem
ég eyddi með henni ömmu minni
mér fannst alltaf jafn skemmtilegt að fara til hennar, vissi að ég fengi
alltaf hafragraut
og eins þegar að afi var á lífi þá gerðum við margt skemmtilegt
saman öll 3
ég föndraði mikið með ömmu og við gerðum blóm og fiðrildi úr
vírum og nylon efni það var alltaf jafn
gaman að gera það, bara að fá að vera með ömmu og afa gerði mig
hamingjusama, ef ég hefði
fengið að ráða þá hefði ég ábyggilega verið miklu meira með þeim.
En núna er þetta búið og ég veit að ömmu minni líður mikið betur
núna hjá honum afa, þau eru
ábyggilega rosalega ánægð yfir því að vera loksins saman á ný.
Ég mun ávallt minnast þín elsku amma mín, ég sakna þín sárt.
Þín ömmu stelpa Freydís Hrefna
Hér er hún amma mín og Magnús litli
Ég vissi að það færi að koma að þessum degi að hún amma mín færi,
en ég var ekki tilbúin að kveðja það er svo sárt að missa einhvern
sem maður elskar
ég get ekki einu sinni lýst því, en ég veit að hún er komin á betri
stað og að henni líður vel í fanginu
hjá honum afa.
Elsku amma og afi hvílið í friði ég elska ykkur óendanlega mikið.
Athugasemdir
Elsku Freydís mín og fjölskylda, ég samhryggist þér innilega vegna fráfalls ömmu þinnar það er alltaf erfitt að missa náin ættingja, ég hugsa daglega til ömmu minnar og trúi því ekki enn að hún sé farin enda sakna ég hennar sárt Guð geymi ömmu þína og blessi minning hennar.
kveðja Ragga
Ragga (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 17:53
Elsku Freydís mín.
Það er rétt,það er stórt gat höggið úr ættinni þegar svona mikill falslaus karakter hverfur yfirr móðuna miklu.
Hennar er sárt saknað af mögum, sé þig fljótlega elskan mín.
Pabbi....
Hlynur Magnússon (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 20:28
Hæhæ Freydís og fjölskylda samhryggist ykkur alveg innilega . Kossar og knús
Ásdís Ósk Valsdóttir, 20.8.2008 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.